Höfn fasteignasala kynnir, í einkasölu:
Hörgsholt 15.
Sérlega fallegt einbýli á tveim hæðum á einstökum útsýnisstað innst í götu, stutt í ósnortna náttúru. Einstaklega vel viðhaldið hús sem var mikið endurnýjað að innan fyrir nokkru. Allar breytingar hannaðar af Sæbjörgu Guðjónsdóttir (Sæju) innanhúsarkitekt. Stór stofa og eldhús með gluggum á þrjá vegu. Hátt til lofts. Glæsilegt eldhús. Sólstofa og stórar svalir. Þrjú til fjögur svefnherbergi. Baðherbergi með frístandandi baðkari og stórum flísalögðum sturtuklefa. Sjónvarpsstofa og fataherbergi. Innbyggður bílskúr.
Einstaklega vel skipulagt og fallegt hús þar sem vandað hefur verið til verka í hverju smáatriði.
Nánari upplýsingar og bókanir í skoðun hjá Ólafi G. Sveinbjörnssyni, löggiltum fasteignasala, á Höfn fasteignasölu í síma
8228283 - [email protected]ATH - Eingöngu bókaðar einkaskoðanir. Nánari lýsing fasteignar:
Aðkoman að húsinu er falleg. Innkeyrsla og bílastæði með stimplasteypu og hita. Sérlega fallegur gróður fyrir framan inngang og allur frágangur til fyrirmyndar. Bílskúrinn er stór, flísalagt gólf, upptekin loft og geymsluloft yfir hluta skúrsins. Rafmagnshleðsla, þriggja fasa, fyrir bíl er í skúrnum. Öll inntök og veitumælar eru í bílskúrnum. Innangengt er úr bílskúrnum inn í forstofuna.
Komið er inn í húsið á efri hæð frá götu.
Forstofan er rúmgóð og inn af forstofu er gestasalerni með upphengdu wc og sérsmíðuðum vaski. Gólfhiti á baði. Fataherbergi er fyrir yfirhafnir og skó. Komið er inn í glæsilegt opið rými sem er stofa, sólstofa og eldhús. Upptekin loft með mikilli lofthæð. Stórir gluggar eru á þrjá vegu með óviðjafnanlegu útsýni. Eldhúsið var endurnýjað að öllu leiti árið 2018. Sérsmíðuð innrétting og öll eldhústæki af vandaðri gerð frá Siemens. Eyja með spanhellu, innbyggður ísskápur og frystir. Ofn og multiofn (ofn og örbylgjuofn), innbyggð uppþvottavél. Steinn á bekkjum í eldhúsi. Opið inn í stofu og borðstofu. Flísar eru á öllum gólfum hæðarinnar. Úr sólskála er útgengt út á stórar svalir sem snúa til suðurs og vesturs. Glæsilegt útsýni yfir Reykjanesið, til hafs og Snæfellsjökuls.
Stór stigi er svo niður á neðri hæð hússins. Nýtt vandað teppi á stiga.
Á neðri hæð er komið niður í opið rými þar sem í dag er stór sjónvarpsstofa. Var að hluta til áður svefnherbergi og auðvelt er að breyta því aftur og bæta við fjórða svefnherberginu. Útgengt út á timburverönd sem snýr til suðvesturs. Barnaherbergin eru tvö, annað með fataskáp. Hjónaherbergið er rúmgott með stórum skápum. Baðherbergið var allt endurnýjað á mjög vandaðan máta árið 2018. Sérsmíðuð innrétting. Glæsilegt frístandandi baðkar og stór flísalagður sturtuklefi. Upphengt wc, handklæðaofn og hiti í gólfum. Hér var sérlega vandað til allra verka. Þvottahúsið er með innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð og vaski. Inn af þvottahúsi er búið að breyta herbergi,sem áður var geymsla, í vel skipulagt fataherbergi. Úr þvottahúsi er útgengt út í garð.
Allur frágangur í kringum húsið er hinn snyrtilegasti. Stigi frá bílastæði niður með austurhlið hússins, hellulagt er meðfram húsi. Lýsing sem er undir þaki allan hringinn var nýlega endurnýjuð.
Allar breytingar sem gerðar voru árið 2018, val á tækjum, og endurbætur sem gerðar voru innandyra voru hannaðar af Sæbjörgu Guðjónsdóttir innanhúsarkitekt.
Yfirlit yfir það helsta sem var gert í þessum framkvæmdum; Innréttingar í eldhúsi og á baði sérsmíðaðar. Steinn á borðplötum í eldhúsi og baðherbergjum frá Granítsmiðjunni. Blöndunar- og hreinlætistæki frá Tengi. Öll eldhústæki frá Siemens. Öll gólfefni hússins endurnýjuð. Nýjar neysluvatnslagnir og varmaskiptir. Raflagnir uppfærðar að hluta 2018 - Gira. Cat5 kerfi í öllum herbergjum. Gólfhiti í hluta hússins. Nýleg 3 fasa rafhleðslustöð frá BMW. Nýtt teppi á stiga. Ný útilýsing í þakkanti.
Hörgsholt 15 er einstaklega vel viðhaldið hús og ber vott um að hafa fengið gott viðhald alla tíð. Mikið endurnýjað að innan árið 2018.Allar Nánari upplýsingar og bókanir í skoðun hjá Ólafi G. Sveinbjörnssyni, löggiltum fasteignasala hjá Höfn fasteignasölu , í síma
8228283 eða [email protected].Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Höfn fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi